komin aftur

Vafla

23.10.2006 23:01:52 / vala

yay

ég er farin...

http://vafla.bloggar.is/


» 0 hafa sagt sína skoðun

04.07.2006 11:13:35 / vala

já ég á blogg

ég er að spá í að blogga voða lítið í sumar, sorry, en ég mun blogga aftur í haust. vonandi....

Afsakið Hlé

....og já ég veit það lélegasta blogg ever :cry:


» 13 hafa sagt sína skoðun

23.05.2006 21:32:57 / vala

Kosningar

Þá er komið að þessum blessuðu bæjarstjórnarkosningum, og maður þarf víst að velja hver á að kjósa, ég þoli ekki þegar ég má bara velja einn, annars þá er ég meðal  fáfróðustu verum á jörðunni um pólitík, svo ég get lítið sagt um þetta. En það sem ég veit er að flestir í kringum mig eru vinstri menn og eru komnir á góða leið með að drega mig þangað niður með sér :lol: Og svo eru nokkrar littlar raddir inná milli sem þora að viðurkenna að ætla að kjósa sjálfstæðisflokkinn (hægri)sem er óvinur vinstri manna...
fyrir mér er samt ekki til neitt vinstri, ég nota oftast bara hægri og svo hitt hægri, þó svo að ég held að ég eigi ekki eftir að kjósa hægri  8|
en ég veit það ekki ennþá, ég veit yfirleitt ekki neitt. Ég samt komst að því í morgun að samfylkingin og sjálfstæðisflokkurinn væru EKKI einn og sami flokkurinn, ekki furða að ég hafi fallið í sögu... Þetta eru tveir ólíkir flokkar, og ég held að mér líki betur við samfylkinguna, því þar er Valdís og hún og hennar flokkur gáfu mér bolta, penna, sápukúlur, og bol með mynd af bókhaldaranum sjálfum (Humphrey Bogart) heehe, með því að vera svona rausnarleg er samfylkinginn búin að kaupa hjarta mitt og atkvæði, en því miður má ég ekki kjósa þau :$



» 11 hafa sagt sína skoðun

05.05.2006 14:29:51 / vala

jæja

Jæja, er mjög viðeigandi núna enda er það eitt af mínum uppáhalds orðum!
Ég verð að viðurkenna það að ég er mjög lélegur bloggari þessa stundina, hehe. En ég ætla að kenna því um að ég er ekki lengur með netið á vistinni og sit ég þess vegna úti í skóla ein í kvosinni að blogga, og blái herinn gengur vopnaður um og hreinsar heiminn í kringum mig.
Annars er ég bara búin að vera lasin eins og einhver kjáni, og er fólið farið að verða voða vingjarnlegt uppi á slysó... alltaf brosandi og svo kemur alltaf bara takk f. síðast og skemmtilegt spjall.. voða kósí eða þannig. doktorinn sagði mér að ég væri með mígreni og að ég ætti að hætta að borða súkkulaði og gá hvort að það myndi ekki laga þetta :cry: en ég vona að það sé ekki satt. Svo sagði hann að ég ætti að borða, sofa, hreyfa mig, slaka á og allt reglulega...sem að ég er að reyna... hvernig sem að það tekst til :$
Svo er Saga að fara að frumsýna í næstu viku ég held að það heiti Núna og verði frumsýnt 10 maí. voða gaman...
 
jæja þá er blái herinn að fara og ég er að hugsa um að gera slíkt hið sama

Gúdd bæ

» 8 hafa sagt sína skoðun

24.04.2006 13:14:46 / vala

Afsakið hlé

má maður ekki fá sér páskafrí, hvað er málið.
ég gerði fullt um páskana og ég skal skrifa um það allt seinna (eða aldrei)



» 8 hafa sagt sína skoðun

01.04.2006 15:27:15 / vala

Djöfull

Ég týndi símanum mínum á djamminu í gær, ég er viss um að einhver hafi stolið honum, þetta er ömurlegt...
Ég svaf næstum yfir mig á æfingu í morgun útaf þessu, ég held að lífið sé búið... það er að segja þar til að ég fæ nýjan síma..

Hvað á ég að gera?

» 20 hafa sagt sína skoðun

28.03.2006 19:19:40 / vala

construction holy shit

jejj ég er byrjuð í sögu aftur.. ekkert smá gaman, ég er samt ekki viss hvað við ætlum að gera ennþá, en það skipti ekki öllu :)
Svo er maður að fara að skella sér til Hríseyjar í fyrramáið og svo í 3 tíma göngutúr í ofsaveðri í útivist. Kandada hokký gellurnar koma svo vonandi í kvöld ef að veður leyfir.
Og við spilum svo við þær á fimmtudaginn og svo er björninn að koma líka og við ætlum sko að vinna þann leik. muhaahaha...

Svo eru bara að koma páskar, belgar, æfingar, frumsýning, skóli, próf og svo þetta æðislega lángþráða sumarfrí.. :D ég er komin með vinnu á Þingvöllum með Önnu og Ingu það verður djammað mar.

jæja þá held ég bara að ég fari að borða kvöldmatinn nammi namm, jarðaberja skyr og kókómjólk í eftirrétt. ...

» 8 hafa sagt sína skoðun

25.03.2006 13:04:09 / vala

djamm djamm djamm

DJ Páll Óskar í sjallanum í kvöld.. er það?




» 0 hafa sagt sína skoðun

20.03.2006 15:20:10 / vala

bleikir bananar

Jamm, ég er nú að verða frekar lélegur bloggari, vér hokký gellur töpuðum titlinum um helgina. Leikurinn var samt góður, bæði liðin voru að spila vel og betra liðið vann. Það var samt frekar stutt í tárin inni í klefa.. en það er búið núna, (ég fékk ekki einu sinni að spila með BÖMMER) enhvaðmeðþað... :$
Og Anton beygla hætti við djammið sem allir voru búnir að hlakka til, ég er enn sár :evil:

En allavega þá er ratatoskur á morgun... Ég er að fara í boot camp :lol: með Önnu og Höllu :D það verður bara gaman.. 

over "n" out

Vafla

» 2 hafa sagt sína skoðun

12.03.2006 22:13:04 / vala

helgin strax búin

jamm doltið síðan ég hef bloggað eitthvað.. Ég ætlaði að læra um helgina en það varð lítið úr því, ég fór i staðinn í æðislega óvissuferð með hokký gellunum ;). hehe, við fórum og skoðuðum beljur í hringekju (hvernig skrifar maður þetta?) og fórum svo í ratleik og hlupum eins og mófó í 22 mínótur, enda var keppnisskapið alveg að drepa mann... og auðvitað fékk betra liðið að vinna.. mitt lið ;) svo gerðum við fullt ... ég er sykurpúði...en ég ætla að fara að læra :$

Vafla bala

» 8 hafa sagt sína skoðun

05.03.2006 15:38:00 / vala

Minns er fúll

Við skitum laglega upp á bak í höllinni í gær þegar við töpuðum fyrir Birninum 1-7, hvernig sem að það tókst. Og ég fékk ekki einu sinni að fara inná, ohh hvað mig langaði að öskra á einhvern... helv"$#", en ég ákvað að sleppa því, þó svo að lítið hafi verið öskrað eftir þennan leik, þriðja tapið í röð, hvað er í gangi. Ég er ekki sátt.. :evil:
Þá er bara einn leikur eftir, úrslita leikurinn þar sem spilað verður um gullið í borg óttans. Sömu helgi og kveðjupartíið hans Antons... ég veit ekki lengur hvað ég á að gera, á ég að fara suður og sitja á bekknum og vona að ég fái að snerta pökkinn og fá gull eða á ég að djamma my ass off með öllu skemmtilega fólkinu f. norðan :S Ég get ekki bæði???


» 6 hafa sagt sína skoðun

27.02.2006 10:22:07 / vala

Bolli bolli

helgin er búin, bara ef að hún hefði verið aðeins lengri, það hefði verið gott :) Ég er strax farin að hlakka til að gera eitthvað sniðugt næstu helgi... ég og Anna höfum verið órúlega duglegar ásamt flerium að koma með góðar hugmyndir.. við erum búnar að fara í sund, heita pottin hjá Önnu, skauta, bakaríð við brúna, Karó, Odvitinn, græni hatturinn kjarni og aftur á skauta , svo má ekki gleyma að fá sér ís og þrífa bíla (þó svo að þeir voru enn skítugir eftri að við gerðum tilraun til að þrífa) ... 

Ég fór í leikús um helgina á Maríubjölluna, sem algjör sýra, og alveg ótrúlaga flottt sviðsmynd :) ... Og svo er farið að styttast í leikinn, SA vs. Björninn næstu helgi á laugardaginn kl. 7 held ég... Allir að mæta, hver veit nema að ég fái að fara inn á ísinn??? Við ætlum að vinna...

Jámm og gleðilegan bolludag , megiði öll borða yfir ykkur af bollum með fullt af rjóma og súkkulaði nammmi namm.

Vafla bala


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.02.2006 14:16:12 / vala

æi

ég var búin að skrifa fullt meira, en það kemur seinnaenda er nú komin langþráðhelgi ;)



» 3 hafa sagt sína skoðun

18.02.2006 02:28:57 / vala

In the midddle of the night

Ótrúlega skrítið vikan er búin en hún var bara rétt að byrja og það er strax komin helgi... ekkert smá sem að tímin líður.. Það er meira að segja akkurat mánuður síðan að ég fór upp á spítala síðast(það er hægt að halda uppá það) en ég er samt ekki alveg að ná að losna við þessa bólgur í ökklanum Helv#"$%. En það er stutt í næsta leik og það gæti farið svo að ég verði með í leiknum...ég held að hann sé 4 mars (á laugardegi) allir að mæta og kvetja SA koma með smá stemmara í höllina. Allavega hlakka ég til þó svo að ég verði bara á bekknum svona svo að ég skemmileggi ekki fótinn endanlega.

Ég er samt búin að afreka það að sannfæra Hrefnu, Önnu og jafnvel Kötu Mæju líka til að koma á hokký æfingu með mér á sunnudags morguninn, ég bjóst ekki við því að það yrði svo auðvelt.. Hinar hokký gellur nar voru farnar að bögga mig doltið yfir því að standa ekki í lappirnar (hvort sem að ég er á ísnum eða ekki) þannig að ég ætla bara að draga nýja kjána með mér í liðið til að það verði ekki eins mikið horft á mínar frægu fellur :) þetta er allt útpælt Muhahaa

Ég er að spá í að fara að sofa, skrítið hvað maður getur orðið fastur við tölvuna stundum, ég er búin að vera svo lengi að skrifa einkerrar pælingar um ekki neitt, kommenta og rugl að ég er orðin blóðlaus í puttunum...

Vafla



» 7 hafa sagt sína skoðun

13.02.2006 17:27:57 / vala

bara ef

það er alveg orðin rúm vika síðan ég skrifaði eikkað sniðug í þetta blogg mitt.
ég er að spá í að í klippingu, en ég tími því samt ekki. :lol::lol: ég veit ekki hvað ég á að gera, ég var samt að vinna um helgina voða dugleg.. ég þyrfti samt að fara að kaupa kort í ræktina eða skella mér á einn svona sjúkraþjálfara, en þeir eru víst sagðir voða sniðugir.. og dýrir :$  og svo þarf ég víst líka að nærast..

bara ef að ég ætti lottó miða með vinningi 8) það væri mjög hentugt... 

já og eitt enn mig dreymdi martröð í nótt, sem var á þá leið að Anton elskan kom í skólann með snák í glærum plastpoka.. sem að var svona gulur og rauður röndóttur, og stórhættulegur, svo misstir anton pokan og Dóra Rún sprengir hann þegar hún hoppaði úr bókasafninu (sem að þurfi að klifra upp í afþví að hurðin var svo hátt uppi ? )
Snákurinn sleppur og bítur Dóru, þá finn ég bók um snákinn sem segir frá því að snákurinn sé stórhættulegur... og að Danmörk hafi unnið seinni heimstyrjöldina vegna þess að krónprins dana átti snákinn...? og að Dóra væri að deyja af snáksbitinu :cry: og þurfti að fara upp á spítala á meðan ég og anton börðumst saman eins og hetjur við snákinn... með því að kasta skóm í hann?  
og svo vaknaði ég ....



» 14 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3
allskonar